Blue Ice: Summer Edition

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
4000 ISK
Open the calendar popup.
1
15990 ISK
99,71 EUR
135,90 USD
ISK
99,71 EUR
135,90 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Blár ís - Jökulganga og ísklifur á Sólheimajökli

Jökulganga og ísklifurkynning á Sólheimajökli
Erfiðleikastig ferðar: 2 til 3 af 5 mögulegum.

Langar þig að kanna skriðjökulinn, að upplifa mikilfengleika hans og fjölbreytileika? Hér gefst þér færi á að ganga um hjarnið, sjá jökulsvelgina og sprungum skríddan jökulsporðin með eigin augum.  Það fer hver að verða síðastur að heimsækja þessi mikilfenglegu náttúrufyrirbæri sem hopa nú gríðarlega ár hvert. Eftir gönguferð á jöklinum nemum við staðar við ísvegg og allir sem vilja, fá að prófa að nota ísaxir, mannbrodda og reipi til að spreyta sig á veggnum undir leiðsögn frá sérfróðum ævintýraleiðsögumönnum. Öryggislínur sjá til þess að allir fá næg tækifæri til að reyna við blátt stálið án þess að hætta sé á að falla niður.

Hér gefst þér færi á að sjá og gera það sem flestir fá aðeins að reyna í draumum sínum. Ævintýrið bíður!

Ferð þessi á sér örugga brottför fyrir minnst 2 þátttakendur alla daga frá 15. maí til 15. september kl.8:30 frá Fjallakofanum á Laugarvegi 11 eða kl. 11:30 á bílastæðinu við Sólheimajökul.

Smáatriði:

Verð: 15.990 kr á mann ef hist er við Sólheimajökul. 19.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík og tilbaka.
Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað.

Innifalið: mannbroddar, ísaxir, klifurbelti, hjálmar, leiðsögn og nesti.

Í boði allt árið (Ath. háð veðri). Smelltu hér fyrir vetrarútgáfuna af ferðinni.

Fjarlægð frá Reykjavík:
164 km.

Lengd ferðar: 4 klst. ef hist er við jökul. 9 klst. með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík.

Lágmark:
2 þátttakendur. Hámark: 20 þátttakendur.

Aldurstakmark: 14 ár.

Þátttakendur verða að taka með sér:
Hlýan útivistarfatnað, vatnsheldan jakka og buxur og hlýja peysu. Góðir gönguskór eru lykilatriði.

Það er líka hægt að panta ferð á Sólheimajökli sem felur ekki í sér ísklifur heldur bara jökulgöngu. Með því móti hægt að taka á móti mun fleiri þátttakendum. Smelltu hér til að fræðast meira um slíka ferð.


Ath:
Sértu í leit að adrenalíni þarftu ekki að leita lengra. Arctic Rafting getur sérhannað fyrir þig og þína ísklifur að hvaða erfiðleikastigi sem er, hvar sem aðstæður leyfa á landinu. Sendu okkur línu eða sláðu á þráðinn og við hjálpum þér að vinna úr hugmyndum þínu.

Fyrirvari: Allar jöklaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English