Arctic Rafting býður upp á jökulgöngu og ísklifur á Sólheimajökli alla laugardaga frá fyrsta Júní til fyrsta september.
Einnig bjóðum við upp á geggjaðar og krefjandi jökul/fjallgöngur á Hvannadalshnjúk, Eyjafjallajökull og Snæfellsjökul. Smelltu
hér til að fræðast meira um þessar ægifögru göngur!
Einnig tökum við að okkur ýmis sérhæfð verkefni s.s. lengri göngur á jöklum landsins og öryggisumsjón við kvikmynda og sjónvarpsupptökur.
Smelltu
hér til að fræðast um ævintýraferð á Sólheimajökli.
Hvað er ísklifur?
Þátttakendur klæða sig í sérstakt öryggisbelti sem tengir þá við öryggislínu sem leiðsögumaður stjórnar. Þannig fá allir að reyna að klifra upp þverhníptan ísvegg með ísaxir í hendi á áhættulítinn hátt. Ef þátttakandi missir gripið þá dettur hann ekki nema örfáa sentimetra og fær annað tækifæri til að komast á toppinn. Allir klæðast mannbroddum svo hægt sé að fóta sig á hjarninu.
Click here for English