Hellaferði í Gjábakkahelli á Lyngdalsheiði á Þingvöllum
Erfiðleikastig ferðar 2 af 5 mögulegum.
Kannaðu lukta heima hraunbreiðunnar Goðahrauns á Lyngdalsheiði. Gangan gegnum hellin sem kenndur er við Gjábakka er sannarlega framandi og fræðandi ferð um þennan undarlega heim sem eldgos og jarðhræringar hafa skapað fyrir okkar tíð. Gjábakkahellir er mjög gott dæmi um íslensk hraungöng og við prílum, göngum og skríðum lítið eitt á leið okkar í gegnum hana. Þetta er svakalega skemmtileg og öðruvísi ferð sem allir hafa gaman af, sannarlega eitthvað sem maður gerir ekki á hverjum degi!
Síðan er farið í sérhannaða og einstaka hópeflisleikir til að þjappa liðinu saman! Það eflir hópandan og allir eiga eftir að skemmta sér konunglega. Hópeflisleikirnir eru sniðnir að hverjum hóp hverju sinni svo það er mikilvæg að láta okkur vita um eðli hópsins, s.s. stærð á hóp, aldursbil og þess háttar.
Ferðin kemur öllum í gott skap og starfsmannahópurinn nær betur saman.
Ef hópurinn vill er hægt að fara í sund, heita potta og gufu eftir ferðina, einnig er hægt að bæta við skemmtilegum kvöldverði á Rauða Húsinu, Stokkseyri.
Verð á mann (lágmark 10 manns):
Leikir og hellaferð: 9.000 kr á mann.
Leikir, hellaferð og sund/gufa/pottar: 9.300 kr á mann.
Leikir, hellaferð, sund/gufa/pottar, humarveisla: 14.900 kr á mann.
Verðin gilda frá 15. maí 2011 til 15. september 2011
Gerum tilboð í akstur miðað við lengd ferðar og fjölda þátttakenda.
Innifalið: allur sérhæfður búnaður til hellafarar og leiðsögn.
Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.
Lágmark: 10 þátttakendur.
Þátttakendur verða að taka með sér: Vatnsheldan jakka og buxur og hlýjan innanundir fatnað. Góðir skór eru höfuðatriði!
Fyrirvari: Allar hellaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English