Black & Blue: Summer Edition

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
Open the calendar popup.
1
19990 ISK
124,65 EUR
169,90 USD
ISK
124,65 EUR
169,90 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Hellaferð í Gjábakkahelli og snorkeling í Silfru á Þingvöllum

Hellaferð í Gjábakkahelli & snorkeling í Silfru.
Erfiðleikastig ferðar: 2 af 5 mögulegum.

Við byrjum á að kanna lukta heima hraunbreiðunnar Goðahrauns á Lyngdalsheiði. Gangan gegnum hellin sem kenndur er við Gjábakka er sannarlega framandi og fræðandi ferð um þennan undarlega heim sem eldgos og jarðhræingar hafa skapað fyrir okkar tíð. Gjábakkahellir er mjög gott dæmi um íslensk hraungöng og við prílum, göngum og skríðum lítið eitt á leið okkar í gegnum þau. Eftir hellaferðina snæðum við nesti áður en kemur að seinni hluta ferðinnar.

Gjáin Silfra er eitt af best geymdu leyndardómum Íslands enda er hún staðsett í hjarta Þingvalla og er hún talin ein af 10 flottustu köfunarstöðum í heiminum. Í Silfru er nefnilega eitt allra besta útsýni neðan vatnsmáls sem fyrirfinnst á þessari jörð. Snorkling í Silfru er einstakt tækifæri til að bera augum hraunmyndanir og yfirþyrmandi fegurð sprungunnar neðan vatnsmáls. Við látum okkur svífa, þyngdarlaus með letilegum straumnum og í gegnum gleraugun er umhverfið kristaltært.

Black & Blue er sannarlega frábær ferð, eitthvað sem hvergi er hægt að gera annarsstaðar á jörðinni!

Örugg brottför alla daga fyrir minnst 2 þátttakendur kl. 9:00 frá Fjallakofanum á Laugavegi 11 og kl. 10:00 frá Þingvöllum. Gildir á tímabilinu 15.maí til 15. september.

Smáatriði:

Verð: 19.990 kr á mann.

Innfalið:
Hellaferð í Gjábakkahelli, nesti, snorkeling í Silfru og akstur.

Tímabil: Í boði allt árið (Ath. Háð veðri). Smellið hér fyrir vetrarútgáfu af ferðinni.

 Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.

Heildarlengd ferðar:
7 klst.

Lágmark:
2 þátttakendur. Hámark: 30 þátttakendur.

Aldurstakmark: 14 ár.

Þátttakendur verða að taka með sér: föt til skiptana, hlý föt, vatnsheldan utanyfirfatnað, góða skó, hlýja sokka til skiptana og handlæði.

Fyrirvari: Allar hella- og snorkelingferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English