Hellaferðir í Gjábakkahelli á Þingvöllum Erfiðleikastig ferðar 2 af 5 mögulegum. Kannaðu lukta heima hraunbreiðunnar Goðahrauns á Lyngdalsheiði. Gangan gegnum hellin sem kenndur er við Gjábakka er sannarlega framandi og fræðandi ferð um þennan undarlega heim sem eldgos og jarðhræringar hafa skapað fyrir okkar tíð. Gjábakkahellir er mjög gott dæmi um íslensk hraungöng og við prílum, göngum og skríðum lítið eitt á leið okkar í gegnum þau. Þetta er svakalega skemmtileg og öðruvísi ferð sem allir hafa gaman af, sannarlega eitthvað sem maður gerir ekki á hverjum degi!
Þessi ferð á sér örugga brottför kl. 9:00 alla daga fyrir minnst 4 þátttakendur og sem partur af hinni vinsælu Black & Blue comboferð. Brottför frá Fjallakofanum á Laugavegi 11, þetta gildir fyrir tímabilið 15. maí til 15. september. Smáatriði:
Verð: 9.990 kr án aksturs. 12.990 með akstri frá Reykjavík og tilbaka.
Innifalið: allur sérhæfður búnaður til hellafarar og leiðsögn.
Í boði: allt árið (Ath. háð snjóalögum og veðri á veturnar, á veturna förum við í Leiðarenda í stað Gjábakkahellis).
Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.
Lengd ferðar: 2 klst. án aksturs, 4 klst með akstri.
Lágmark: 4 þátttakendur. Hámark: 80.
Aldurstakmark: 12 ár.
Þáttakendur verða að taka með sér: Vatnsheldan jakka og buxur og hlýjan innanundir fatnað. Góðir skór eru höfuðatriði!
Tvær ævintýraferðir í einni: -Hellaferð, snorkeling (gljúfursund) í Silfru, nesti og akstur.
-Hellaferð, flúðasigling á Hvítá, hádegisverður og akstur.
-Hellaferð, skoðunarferð um Þingvelli, Geysi og Gullfoss ásamt nesti.
Hafið samband við skrifstofu og leitið tilboða -
info@adventures.is Kíktu á
Big Day Out ef þú ert að leita að skemmtilegri starfsmannaferð.
Click here for English