Klukkustunda fjórhjólaferð á Sandskeiði.
Arctic Adventures býður upp á frábærar fjórhjólaferðir á Bláfjallasvæðinu. Aðstaða okkar er við mótorkrossbrautina, gegnt Litlu Kaffistofunni á Suðurlandsveginum. Í boði eru fjölbreyttar ferðir um svæðið. Til dæmis er hægt að þruma niður á Sandskeið um Bláfjallahraun og inn í Jósepsdal.
Þegar mætt er upp á fjórhjólasvæði hittið þið leiðsögumenninna ykkar sem fara yfir hvernig keyra eigi hjólin ásamt þeim öryggisatriðum sem þið þurfið að vita til að vera örugg á hjólunum. Síðan er lagt af stað á fjórhjólunum eftir hinum ýmsu slóðum sem liggja um svæðið, í gegnum hraunbreiður og inn í Jósepsdal.
Að ferðast á fjórhjólum er frábær leið til að kynnast þessu fallega svæði á skemmtilegan og spennandi hátt!
Þessi ferð á sér öruggar brottfarir alla daga kl. 9:00 frá Reykjavík og kl. 10:00 frá Litlu Kaffistofunni fyrir minnst 2 þátttakendur.
Smáatriði:
Verð: 10.490 kr á mann án aksturs frá Reykjavík. 12.990 kr á mann með akstri frá Reykjavík og tilbaka. Verðin miðast við 2 saman á hjóli.
Bætið við 2.500 kr á mann til að vera stakur á hjóli.
Innifalið: fjórhjól (miðað við 2 á hjóli), leiðsögn og allur nauðsynlegur búnaður.
Í boði: allt árið (Ath. Háð veðri).
Fjarlægð frá Reykjavík: 20 km.
Lengd ferðar: 2 - 3 klst. 1 klst. á hjóli.
Lágmark: 2 þátttakendur. Hámark 60.
Aldurstakmark: 10 ár til að vera farþegi á hjóli.
Þátttakendur verða að taka með sér: Hlýjan og vatnsheldan fatnað.
Ökumenn á fjórhjólum verða að vera með gilt ökuskírteini með sér. Smellið hér fyrir afbókunarstefnu okkar. Fyrirvari: Allar ævintýraferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.