Full Throttle - Combination Tour

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
2000 ISK
2500 ISK
Open the calendar popup.
1
24990 ISK
148,52 EUR
194,22 USD
ISK
148,52 EUR
194,22 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Full Throttle fjórhjóla og rafting ferð

Fjórhjólaferð og Flúðasigling á Hvítá á einum degi.
Erfiðleikastig 3 af 5 mögulegum.

Við hefjum leikinn á fjórhjólaferð um fáfarna slóða á Sandskeiði. Hægt er að velja hvort tveir skipta með sér aktstrinum eða hver er með sitt hjól. Eftir fjórhjólin fáum við okkur snarl á Litlu Kaffistofunni áður en haldið er áfram upp á Drumboddsstaði þar sem bíður okkur flúðasigling niður Hvítá.

Siglt er 7 kílómetra löng leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum og nálægðin við Gullna hringinn og Reykjavík hafa skapað ánni gríðarmiklar vinsældir. Siglingin hefst við Veiðistað og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna.

Fyrir þá sem eru að leita að góðum skammt af adrenalíni er hægt að sigla niður Hvítá í kanó. Eftir siglingu er svo hægt að skella sér í saunu og sturtu, áður en notið verður dýrindis grillaðs lambs og meðlætis og snúið verður aftur til Reykjavíkur.

Örugg brottför alla daga fyrir minnst 2 þátttakendur kl. 9:00 frá Fjallakofanum á Laugavegi 11. Gildir á tímabilinu 15. maí til 15. maí. Fyrir minnst 4 þátttakendur frá 15. apríl - 14. maí og 16. september - 1. október.

Smáatriði:

Verð: 24.990 kr á mann.
Verðið miðast við tvo um hvert hjól, bættu við 2.500 kr. á mann til að vera einn á hjóli.
Svo er hægt að herða á fjörinu í Hvítá og fara í kanó, bættu við 2.000 kr á mann.


Innfalið: Fjórhjólaferð, hádegisverður, flúðasigling á Hvítá, akstur og grillveisla á Drumbó.

Í boði: frá 15. apríl til 1. október  (ath. háð veðri).

Lágmark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur frá 15. apríl - 14. maí og 16. september - 1. október. Hámark: 60.

Fjarlægð frá Reykjavík: 100 km.

Heildarlengd ferðar: 11 klst.

Aldurstakmark: 10 ára til að vera farþegi á fjórhjólinu. 12 ára til að sigla niður alla ána, 10 ára til að sigla seinni helminginn.

Þátttakendur verða að taka með sér: hlý og vatnsheld utanyfirföt, góða skó, handklæði, föt til skiptana, sundföt og hlýja peysu (flís/ull).
Ökumenn á fjórhjólum verða að vera með gilt ökuskírteini með sér.

Fyrirvari: Allar fjórhjólaferðir og flúðasiglingar eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Adventures tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrri því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.

Click here for English