Fjórhjólaferð á Hellisheiði
Erfiðleikastig 2 af 5 möguleikum. Auðvelt.
Arctic Adventures býður upp á frábærar fjórhjólaferðir á Bláfjallasvæðinu. Aðstaða okkar er við mótorkrossbrautina, gegnt Litlu Kaffistofunni á Suðurlandsveginum. Í boði eru fjölbreyttar ferðir um svæðið. Til dæmis er hægt að þruma niður á Sandskeið um Bláfjallahraun og inn í Jósepsdal.
Ferðirnar henta öllum mjög vel, hvort sem það eru einstaklingar eða fjölskyldur, einnig sem þær henta stórvel í gæsa- eða steggjapartýin.
Við bjóðum upp á einnar klukkustundar langa ferð (
Mountain Ride) og svo tveggja klukkustunda langa ferð (
Mountain Cruiser). Við bjóðum upp á stórskemmtilega comboferð sem saman stendur af klukkustunda fjórhjólaferð og svo rafting niður Hvítá (
Full Throttle).
Einnig getum við boðið upp á sérhannaðar ferðir fyrir þig og hópinn þinn!
Endilega hafðu samband í s. 571-2200 eða sendu póst á info@arcticrafting.is