Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Þverártindsegg

Krefjandi fjallganga á eitt glæsilegasta fjall landsins sem hefur ekki notið verðskuldaðrar athygli vegna nálægðar sinnar við frægustu fjallarisa landsins.   

Erfiðleikastig ferðar: 4+ af 5 mögulegum. Mjög krefjandi.

Þverártindsegg er tindur sem margir hafa dáðst að úr fjarlægð en fáir hafa lagt til atlögu við. Tindurinn sem rís beint upp af botni Kálfafellsdals í Suðursveit er háreistur, brattur og gríðarlega fallegur. Þverártindsegg er í raun 3-4 km langur hryggur og við stefnum á hæsta punkt hans. Eins og gildir um svo mörg fjöll í suðurjaðri Vatnajökuls er óráð að ganga á fjallið nema í fylgd þeirra sem til þekkja og eru vanir fjallamenn. Fjallið hefur því verið afar fáfarið þrátt fyrir að mikið hafi verið dáðst að því úr fjarlægð. Við mælum sterklega með því að fólk hafi einhverja reynslu af löngum erfiðum fjallgöngum áður en lagt er upp í göngu á Þverártindsegg. Gangan hefst innan við bæinn Reynivelli í Suðursveit, liggur yfir Hólmafjall og um skriður þar til komið er á jökul í um 800 m hæð. Þaðan liggur leiðin upp á hrygg sem leiðir okkur upp Eggina. Leiðarval fer að einhverju leiti eftir árstíma og snjóalögum. Ganga á Þverártindsegg leiðir þátttakendur um afar sérstætt landslag sem á sér ekki margar hliðstæður, hvorki hér á landi né annars staðar.
Hæð: 1554 m

Landslag: Gengið er upp brattar skriður þar til komið er á jökul í um 800 m hæð. Brattinn á jöklinum sjálfum er ekki mikill nema þegar komið er að egginni sjálfri. Toppurinn stendur upp úr jöklinum og er því íslaus. Gangan krefst sérhæfðs jöklabúnaðar þar sem sprungur leynast á jöklinum.

Meðal uppgöngutími: 6-9 klst.

Meðal heildarlengd ferðar: 12-15 klst.

Gönguhækkun: ~ 1500 m.

Gagnlegar upplýsingar:

Endilega sendið okkur fyrirspurn um verð.

Innifalið í verði er leiðsögn og allur sérhæfður jöklabúnaður sem nauðsynlegt er að hafa meðferðis á göngunni.

Við áskiljum okkur þann rétt að fresta eða fella niður ferðir vegna óviðráðanlegra aðstæðna með öryggi þitt í huga.

Fjarlægð frá Reykjavík: 350 km.
Í boði: 1. maí - 1. ágúst. Athugið að tímabilið er þó mjög háð snjóalögum og aðstæðum á fjallinu.
Lágmarksfjöldi: 5 þátttakendur.
Aldurstakmark: 18 ára.
Það sem þarf að taka með sér í ferðina er hægt að sjá á útbúnaðarlistanum okkar.

Vinsamlegast hafið samband í síma 571-2100 til að bóka og fá frekari upplýsingar.

Samningsákvæði:

Allir þátttakendur í ferðum á vegum Arctic Adventures, þ.m.t. jöklaferðum, eru á eigin ábyrgð. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.

Click here for English