Fjallganga á hæsta tind landsins frá Skaftafelli
Erfiðleikastig ferðar: 4 af 5 mögulegum.
Að standa þar sem hærra verður ekki komist og bera landið þaðan augum er ógleymanleg lífsreynsla sem engin íslenskur útvistarmaður eða kona ætti að láta fram hjá sér fara. Samfara auknum áhuga Íslendinga á útivist og náttúru landsins hefur áhugi á ferðum á hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk, aukist mikið. Að ganga á Hnúkinn krefst töluverðar sérþekkingar sem og búnaðar, en sé gengið með leiðsögumanni er hún ekki tæknilega erfið þó vissulega sé gangan löng og líkamlega krefjandi. Arctic Adventures býður upp á frábærar ferðir á tindinn sem fela í sér allan nauðsynlegan búnað og leiðsögn margra af færustu fjallaleiðsögumönnum landsins. Við göngum alltaf Sandfellsleiðina upp á Hnúkinn.
Vinsamlegast athugið að gera verður ráð fyrir að koma í Skaftafell eða nágrenni þess daginn áður en gengið er og gista nóttina eftir göngu í Skaftafelli.
Mikilvægt er að undirbúa sig vel líkamlega fyrir ferðina og þá sérstaklega með reglulegum fjallgöngum í aðdraganda hennar. Fyrir hópa sem ætla saman á Hnúkinn með okkur bjóðum við upp á tillögu að undirbúningsgöngum (frítt). Gott er að fara síðastu gönguna með leiðsögumanni og er þá gengin krefjandi leið. Einnig er hægt að fá leiðsögn á öll fjöllin og þá sjáum við um nauðsynlegan fjallabúnað fyrir hverja ferð.
Smáatriði:
Verð: 24.990 kr á mann, miðað við 2 þátttakendur að lágmarki.
Við bjóðum upp á afslætti sem miðast við stærð hópa.
Leitið tilboða hjá skrifstofu (senda fyrirspurn).
Í boði frá lokum apríl til júlí (Ath. Háð veðri).
Akstur frá Reykjavík er í boði fyrir aukagjald sé þess óskað.
Fjarlægð frá Reykjavík: 330 km.
Lengd ferðar: 12 - 15 klst.
Lágmark: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. Annars 4 þátttakendur. Hámark: 120.
Aldurstakmark: 18 ár.
Þátttakendur verða að taka með sér: sjá
útbúnaðarlista.
Innifalið: Leiðsögn á tindinn, 4-8 göngumenn um hvern leiðsögumann og allur búnaður til jökulfarar þ.m.t. mannbroddar, sigbelti og línur.
Fyrirvari: Allar jöklaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English