Gönguferð frá Hveragerði og upp í Reykjadal. Erfiðleikastig ferðar: 2 af 5, auðveld. Gengið er upp í Reykjadal skammt innan við Hveragerði, dalurinn sýður og bullar af öllum mögulegum og ómögulegum hverum! Hér breytist landslagið og hverirnir með hverjum jarðskjálfta sem skekur landið, nýjir hverir og lækir birtast og gamlir hverfa. Niður dalinn sjálfan liðast lítill lækur með sjóðandi vatni sem blandast saman við bergvatnslæk og býr til alveg hreint geggjaðan baðstað. Eftir baðið röltum við ofar í dalinn, kíkjum á skemmtilegar bergmyndanir og fleiri hveri áður en snúið er í tilbaka að bílunum.
Þetta er frábær gönguferð fyrir starfsmannahópa og erlenda gesti.
Þessi ferð á sér örugga brottför kl. 8:00 á miðvikudögum og sunnudögum fyrir minnst 2 þátttakendur frá Fjallakofanum á Laugavegi 11, frá 15.maí til 15. september. Smáatriði: Verð: 9.990 kr á mann án aksturs frá Reykjavík. 12.990 kr á mann með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík. Í boði: allt árið (Ath. háð snjóalögum og veðri á veturnar), smellið
hér fyrir vetrarútgáfu af ferðinni.
Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km.
Lengd ferðar: 4 klst. án aksturs, 6 klst. með akstri frá Reykjavík og tilbaka.
Lágmark: 2 þátttakendur á miðvikudögum og sunnudögum, alla aðra daga 4 þátttakendur. Hámark: 35.
Aldurstakmark: 10 ár.
Þáttakendur verða að taka með sér: Vatnsheldan jakka og buxur og hlýjan innanundirfatnað. Góðir skór eru höfuðatriði!
Fyrirvari: Allar gönguferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English