Hekla Volcano Hike

Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
2
27990 ISK
174,53 EUR
237,89 USD
ISK
174,53 EUR
237,89 USD
Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Hekla - Drottning Íslands

Gönguferð á frægasta og jafnframt eitt virkasta eldfjall landsins. Hekla er stórglæsileg á að líta og fyrir Íslendinga er það hálfgerð pílagrímsför að ganga á fjallið sem áður fyrr var talið geyma innganginn að helvíti sjálfu.

Erfiðleikastuðull ferðarinnar er 3 af 5 mögulegum.

Hekla er án efa frægasta eldfjall landsins og þó víðar væri leitað. Hún er annað virkasta eldfjall Íslands og hefur gosið þó nokkrum sinnum á sögulegum tíma, síðast í febrúar árið 2000. Hún gnæfir tignarleg yfir suðurlandinu enda hátt í 1500 m há og sést víða að. Í hundruðir ára trúði fólk því að fjallið væri fordyri helvítis og enginn dyrfðist að ganga á fjallið fyrr en Eggert Ólafsson lét til skarar skríða og gekk á hæsta tind Heklu sumarið 1750. Síðan þá hefur Hekla verið vinsæll áfangastaður göngugarpa, ekki síst á síðustu árum eftir að áhugi landsmanna á fjallgöngum og útiveru tók að glæðast. Fjallið er spennandi, ekki síst vegna vel þekktrar gossögu þess en þó ber að sjálfsögðu að hafa varann á því að gos í Heklu gera ekki alltaf boð á undan sér. Um þessar mundir er ekki alls ólíklegt að fjallið fari að vakna af værum svefni svo við metum í hvert skipti hvort ferð á tindinn sé ráðleg eða ekki. Hún Hekla okkar er stórmerkileg, falleg og skemmtileg. Við mælum með að sækja hana heim. Á góðum dögum er útsýnið af toppnum ekki af verri endanum.
Hæð: 1491 m.

Landslag: Í upphafi er gengið um úfið hraun og skriður en þegar nær dregur toppnum verður göngulandið snjór og ís. Gangan er aldrei mjög brött en nokkuð krefjandi samt sem áður.

Meðal uppgöngutími: 3-4 tímar. Meðal ferðatími: 6-8 tímar.

Gönguhækkun: ~1040 m.

Þessi ferð á sér öruggar brottfarir á miðvikudögum kl. 8:00 fyrir minnst 2 þátttakendur, aðra daga fyrir minnst 4 þátttakendur. Þetta gildir tímabilið frá 10. júní fram til 31. september.

Gagnlegar upplýsingar:
 
Verð: 27.990 kr á mann

Fjarlægð frá Reykjavík: U.þ.b. 160 km.

Meðal ferðatími:
6-8 tímar á göngu. 12 klst. með akstri fram og tilbaka frá Reykjavík. 

Í boð:
i frá júní - september (ferðin er háð veðri).

Lágmarksfjöldi: 2 þátttakendur á völdum dögum, annars 4 þátttakendur. Hámarksfjöldi: 60 manns.

Aldurstakmark:
16 ár.

Taktu með þér: Sjá útbúnaðarlista.

Lagt af stað í ferðina kl.08:00 frá Reykjavík.

Lagt af stað kl. 10:00 frá fjallsrótum.

Við áskiljum okkur rétt til að fresta eða aflýsa ferðum vegna veðurs eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.

Bókanir og nánari upplýsingar í síma 571-2100.

Samningsákvæði:


Allir þátttakendur í ferðum á vegum Arctic Adventures, þ.m.t. gönguferðum, eru á eigin ábyrgð. Arctic Adventures ber ekki á nokkurn hátt ábyrgð vegna slysa sem rekja má til gáleysis eða grandaleysis þátttakenda eða ekki er hægt að rekja með beinum hætti til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna fyrirtækisins. Þátttakendum kann að vera gert að skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis, neitun á slíkri undirskrift fyrirgerir þátttakanda rétt til ferðar. Þrátt fyrir að ekki sé sérstaklega undirrituð slík yfirlýsing gildir fyrirvari þessi vegna allra ferða sem bókaðar eru hjá Arctic Adventures. Með kaupum og/eða þátttöku í ferðum á vegum fyrirtækisins hafa þátttakendur staðfest að þeir gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir slíkum ferðum og að þeir eru á eigin ábyrgð.

Click here for English