Ganga á Eyjafjallajökull á suðurströnd Íslands.
Erfiðleikastig ferðar 4 of 5 mögulegum. Krefjandi!
Í um það bil tveggja klukkustunda fjarlægð frá höfuðborginni rís Eyjafjallajökull kyngimagnaður og fagur upp frá suðurströnd landsins. Jökullinn er kenndur við Eyjafjöll, eldfjall þakið 80 ferkílómetra jökulbreiðu sem á stundum er allt að 25-30° brött. Gangan á jökulinn er löng og krefjandi en verðlaunin ríkuleg og uppskeran fagurt ústýni yfir land og haf. Í góðu veðri gefur að líta sprungum skrýddan jökulinn, góðan skerf af Íslandinu auk nágrannana; Mýrdalsjökul, Heklu, Tindfjöll og Vestmannaeyjar -sannarlega geggjað útsýni. Þegar aðstæður leyfa býður jökulinn upp á eina bestu skíðaleið landsins og við bjóðum upp á skíðaferðir fyrir hópa sé þess óskað.
Hæð: 1651 m.
Landslag: Frekar bratt brölt upp að jökulröndinni, löng ganga yfir jökulinn inn að Hámundi. Jökullinn er sprungin svo ganga þarf í línu með réttan búnað og í fylgd leiðsögumanns. Leiðin býður upp á þrumugóða skíðun niður ef aðstæður leyfa.
Meðal uppgöngutími: 6-8 klst. Meðal heildarlengd ferðar: 10-12 klst.
Hækkun: ~1530 metrar.
Smáatriði:
Verð: Sjá bókunarkassa að neðan.
Nesti: 1.500 kr.
Í boði frá: byrjun apríl til loka September (háð veðri og aðstæðum á jökli).
Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km.
Aldurstakmark: 16 ár.
Lágmarks fjöldi þátttakenda: 4 manns. Hámarks fjöldi þátttakenda: 60.
Innifalið: leiðsögn og allur sérhæfður búnaður til jöklafarar.
Taktu með þér: sjá búnaðarlista hér að neðan. Ferðin hefst kl. 7:00 í Reykjavík eða 10:00 við rætur fjallsins.
Við áskilum okkur þeim rétti að fella niður eða breyta ferðinni með öryggi þitt í huga.
Fyrirvari: Allar jöklaferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku. Click here for English