Shopping Cart
Total: 0 ISK
0,00 EUR
Bookmark and Share
Drumboddsstaðir í Biskupstungum eru sjaldan kallaðir annað en Drumbó. Drumbó er fæðingastaður ævintýraferðamensku á Íslandi og bækistöðvar Arctic Rafting á suðurlandi.  Frá Drumbó gerum við út söluhæstu ferðir okkar; flúðasiglingar: "RiverFun" og kanósiglingar: "RiverRide".  Í öllum pakkaferðum okkar frá Reykjavík er komið við á Drumbó fyrir siglingu og hádegisverður snæddur.

Frá Drumbó bjóðum við uppá ferðir daglega, hvort sem er á röftum eða kanóum frá 15.apríl til 1.október.  Á háannatíma frá 15.maí fram til 11.september bjóðum við uppá 2 ferðir á dag, ein kl.10:00 og hin kl.14:00.  Hádegisverður er borinn fram frá 12:00 til 13:30 á þessum tíma árs.

Eftir að hafa fengið að búa hjá bóndanum á Drumboddsstöðum í þónokkurn tíma, fluttumst við í okkar eigið húsnæði árið 1997.  Síðan þá hafa bæði erlendir og íslenskir ferðamenn komið og heimsótt okkur í sveitastemninguna og kíkt á sívinsæla veitingastaðinn okkar DrumBar. Á DrumBar bjóðum við uppá grill, íslenskt lamb og bakaðar kartöflurog drykki svo eitthvað sé nefnt.  Þar erum við með flotta aðstöðu til að taka móti gestum okkar; skiptiklefar, sturtur, saunaklefi, heitir pottar, bar og veitingasalur. Það er erfitt að finna betri bjór en þann fyrsta, ískaldan í pottinum eftir æsilega ferð niður Hvítá.  Find out more about our menu here.

Drumbó er í um 10 mínútna akstri frá Geysi og Gullfossi og aðeins 75 mínútna akstri frá Reykjavík.

Click here to see directions to the Drumbó Base Camp.

Frá Drumbó gerum við út siglingar okkar á Hvítá, .

Við tökum einnig að okkur hverskonar veislu og fundarhöld á Drumbó, sendu okkur línu ef spurningar vakna: info@adventures.is.