Samsett dagsferð á Suðurlandi. Flúðasigling á Hvítá og hestaferð.
Erfiðleikastig 2 af 5 mögulegum. Auðvelt fjölskyldu ævintýri.
Dagsferð frá Reykjavík.
Ferðin hefst frá Völlum í Ölfusi, þar sem við byrjum á að fara á hestbak. Þessi ferð gefur tækifæri til þess að skoða íslenska náttúru á meðan þið kynnist hinum einstaka íslenska hesti. Við sjáum ykkur fyrir öllum nauðsynlegum búnaði og sjáum til þess að ykkur verði úthlutað vinalegum hesti sem kemur til með að mæta reynslu ykkar. Þetta er einstök leið til þess að skoða íslenska náttúru. Eftir reiðtúrinn fáum við íslenska fiskisúpu á Hótel Eldhestum.
Eftir matinn verðið þið sótt og leiðin liggur að Drumboddsstöðum, rafting bækistöðvum okkar og gerum okkur klár fyrir flúðasiglingu niður hina feyki vinsælu Hvítá. Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu okkar, Drumbó. Sigld er 7 kílómetrar leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir. Siglingar á Hvítá henta öllum. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar bergmyndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir alla sem eru í ævintýraleit!
Eftir siglinguna er síðan snætt á dýrindis grilluðu lambi ásamt meðlæti áður en haldir er aftur til Reykjavíkur.
Pottþétt fjölskylduferð, samanblönduð af fallegri náttúru og adrenalíni á einum degi!
Öruggar brottfarir: Daglega fyrir minnst 2 þátttakendur á milli klukkan 8:20 og 8:45 frá Reykjavík. Gildir á tímabilinu 15. maí til 15. september.
Utan háannatíma (15.apríl til 14.maí og 16.september til 1.október) er Rafting & Riding í boði fyrir minnst 4 þátttakendur. Ef þið eruð bara 2, vinsamlegast hafið samband til þess að sameinast öðrum hópum.
Smáatriði:
Verð: 20.990 ISK á manninn.
Innifalið: akstur frá Reykjavík og tilbaka, hestaferð, hádegismatur, flúðasigling og lambagrill.
Vegalengd frá Reykjavík: 100 Km.
Tímalengd ferðar: 11 klukkustundir.
Í boði: frá apríl til október (ATH fer eftir veðri).
Lágmarks þátttaka: 2 þátttakendur frá 15. maí til 15. september. 4 þátttakendur frá 15. apríl - 14. maí og 16. september - 1. október.
Hámarks þátttaka: 100.
Aldurstakmark: 12 ára til að sigla niður alla ána, 10 ára til að sigla niður seinni helminginn.
Takið með ykkur: Hlýja peysu (ull/flís), aukafatnað, sundföt og handklæði.
Ekki gert krafa til þess að þátttakendur hafi nokkra reynslu fyrir ferðina. Fyrirvari: Allar rafting ferðir eru farnar á ábyrgð þátttakenda í henni. Arctic Rafting tekur sér ekki á herðar neina ábyrgð vegna slysa sem verða vegna háttarlags eða hátternis þátttakenda í ferðinnni eða vegna annarra aðstæðna sem rekja má til þeirra eigin gjörða. Þátttakendur kunna að þurfa að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis en að öðrum kosti teljast kaup og þátttaka í ferðinni nægilegur vottur þess efnis að þátttakendur geri sér grein fyrir því að öllum ævintýraferðum og allri útivist fylgir ákveðin áhætta sem þátttakendur taka sér á hendur með þátttöku.
Click here for English