Karfa
Heildarverð viðskipta 0 ISK
0,00 EUR
0,00 USD
Bookmark and Share

Algengar spurningar

Þú getur annað hvort bókað akstur með okkur, hægt er að bóka það með því að haka við pick up boxið þegar bókað er á netinu, veljið gististað af listanum og þá er ekkert mál að sækja þig... getur einnig ekið sjálfur (sjá fyrir neðan)

Akstursleiðbeiningar:

Ef þið ætlið að keyra sjálf eruð þið vinsamlegast beðin um að vera mætt á Drumbó 15 mínútum fyrir siglingu (kl.9:45 eða 13:45 fer eftir bókun ykkar) til þess að skrá ykkur inn fyrir ferðina.  Aksturinn frá Reykjavík að Drumbó tekur um 90 mín, ef ekki er stoppað og ekið á um 90 km/klst.  Ef þið ætlið fara Gullna hringinn fyrir siglinguna kl.14:00 þurfið þið að fara frá Reykjavík ekki seinna en kl.9:00.

Það er úr tveimur leiðum að velja að Drumbó (Drumboddsstöðum) hér eru leiðbeiningarnar:

Bein leið:  Akið á þjóvegi 1 frá Reykjavík (í átt að Hveragerði).  Þegar þið eruð komin framhjá Hveragerði er vinstri beygja á veg nr.35 rétt áður en komið er að Selfossi (á skiltinu stendur Geysir).  Akið á vegi nr.35 í um 30-40 mín þar til að þið akið framhjá Reykholti, 5-10 mínútum eftir Reykholt er hægri beygja með Arctic Rafting skilti.  Akið í um 10 mínútur og fylgið skiltum þar til þið eruð komin á Drumbó.

Gullni hringurinn:  Akið á þjóðvegi 1 frá Reykjavík, rétt utan við Mosfellsbæ er hægri beygja á veg nr.36 (Þingvellir).  Akið til Þingvalla og þaðan á vegi nr.36 í 10 mínútur þar til það kemur vinstri beygja á veg nr.365 (Laugarvatn).  Akið til Laugavatns og takið vinstri beygju á veg nr.37.  Akið í 25 mínútur þar til þið komið að Geysi.  Frá Geysi haldið þið áfram á vegi nr.35 í 10 mínútur þar til þið komið á Gullfoss.  Frá Gullfossi er ekið í átt að Geysi þar til þið komið að vegi nr.30 á vinstri hönd, akið á vegi nr.30 þar til komið er að vegamótum á veg nr.358, beygið þar.  Akið á vegi nr.358 þar til komið er að gamalli hvítri brú á hægri hönd, ekki aka yfir brúna; heldur beygið til vinstri þar sem þið ættuð að sjá Arctic Rafting skilti sem leið ykkur að Drumbó (Drumboddsstaðir).

Hvernig kemst ég til Hafgrímsstaða (Flúðasiglingar á Jökulsá Austari og Vestari):

Beint frá Reykjavík til Hafgrímsstaða:
  Aksturinn tekur um 4 klst, ekið án þess að stoppa á 90 km/klst.  Ekið er norður á þjóðvegi 1 í átt að Mosfellsbæ frá Reykjavík, haldið áfram í gegnum Borgarnes, Bifröst, Laugarbakka, Víðigerði og Blönduós þar til komið er til Varmahlíðar.  Frá Varmahlíð er beygt inn á veg nr.752, á honum er ekið í um 10-15 mínútur þar til þið sjáið rafting bækistöðvarnar okkar á Hafgrímsstöðum.
 

Hvernig bóka ég og hvað upplýsingar þarf ég að gefa?

Það eru nokkrar leiðir til þess að bóka ferð hjá okkur.  Fyrst og fremst er hægt að bóka og greiða fyrir næstum allar ferðir á vefsíðunni okkar.  Það eru bókunargluggar við hverja ferð og við mælum með að bóka á netinu þar sem margar ferðir seljast ört upp, þar sem við reynum að halda hópunum litlum.

Ef það er ekki hægt að bóka ferðina á netinu sem þig langar til þess að bóka, getur þú hringt beint á skrifstofuna í síma+354 562 7000.  Einnig er hægt að senda okkur email með fyrirspurn á info@arcticrafting.is eða info@adventures.is.  Við þurfum að fá tengilið, fjölda þátttakenda, hvar þið eruð að gista og símanúmer eða netfang.

Hvernig borga ég?

Það eru þrjár leiðir til þess að greiða fyrir ferðina hjá okkur.

1.  Þú getur greitt á netinu í gegnum bókunarkerfi okkar.  Þetta er lang auðveldasta, öruggasta og skilvirkasta leiðin til að bóka og greiða.  Ef þú velur þessu leið færðu senda kvittun á netfang þitt sem þú þarft að prenta út og koma með í ferðina.  Ef þú ert að fara í pakkaferð færðu senda eina kvittun fyrir allar ferðirnar á netfang þitt en við útbúum svo fyrir þig miða í hverja ferð fyrir sig sem þú getur sótt á skrifstofu okkar á Laugavegi 11.

2.  Hægt er að greiða í gegnum síma +354 562 7000.  Ef þú kýst að greiða í gegnum síma útbúum við miðana fyrir ferðunum sem bíða þín annað hvort á tölvupósti, hóteli þínu eða á skrifstofu okkar á Laugavegi 11.

3.  Með undantekningum er hægt að greiða í upphafi ferðar.

Vinsamlegast athugið:  Hvernig svo sem greiðslan fer fram fylgir ávallt kvittun/miði:  MUNIÐ AÐ TAKA MIÐANN MEÐ YKKUR Í FERÐINA!

Hvar er skrifstofa Arctic Adventures staðsett í Reykjavík og hvenær er hún opin?

Skrifstofa Arctic Adventures er á Laugavegi 11.  Þar er hægt að fá allar upplýsingar varðandi ferðirnar okkar og margt fleira almennt um Reykjavík o.s.frv.  Einnig er hægt að bóka og greiða fyrir hinar ýmsu ferðir.  Við erum með opið alla daga frá kl. 8:00 á morgnanna til kl. 22:00 á kvöldin, allan ársins hring.

Hversu langan tíma tekur River Fun ferðin (Hvítá)?
Ferðin tekur um 7-8 klst í heildina með akstri frá Reykjavík.  3 klst ef þið komi sjálf og hittið okkur á Drumbó; þar með talið aksturinn frá Drumbó að ánni, fataskipti, leiðbeiningar og öryggisræða leiðsögumanns.  Í siglingunni sjálfri eru þið í um eina og hálfa klukkustund.

Get ég farið Gullna hringinn og farið í flúðasiglingu á sama degi?
Já ekkert mál.  Ef þú ert á eigin bíl ferð þú bara eftir leiðbeiningunum hér að ofan.  Ef þú vilt fá leiðsögn getur þú bókað eina vinsælustu ferðina sem við bjóðum uppá; The Golden Grand Slam, sem inniheldur Gullna hringinn og flúðasiglingu á Hvítá á einum degi.

Hversu margir eru í einum bát?
Bátarnir okkar taka 8-12 manns, en það fer eftir stærð hópa hvers dags. Við reynum að raða á bátana þannig að það mæti óskum og að það fari vel um alla.

Er hægt að bóka sérferðir?
Já við bjóðum uppá sérferðir á Hvítá, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu okkar fyrir nánari upplýsingar: info@arcticrafting.is eða info@adventures.is

Hvaða aðstöðu bjóðið þið uppá á Drumbó?

Á Drumbó er móttaka, bar, veitingahús, sauna, sturtur, skiptiklefar og frábær verönd til þess að slaka á og sötra á bjór eftir ævintýrið.  Drumbó er þvínæst að vera hin fullkomna rafting bækistöð..:)

Hversu langt er Drumbó frá Reykjavík?

98 kílómetrar.

Hversu langt er frá Drumbó að Geysi?
10 kílómetrar.

Hversu langt er Drumbó frá Gullfossi?

12 kílómetrar.

Hversu lengi hafið þið starfað?

Við höfum verið að sigla Hvítá síðan 1983, sem gerir okkur að einu elsta rafting fyrirtæki í Evrópu.

Hvert er aldurstakmarkið fyrir River Fun?
Börn eldri en 12 ára mega rafta niður alla ána með forráðamanni.

Börn á aldrinum 10 til 12 ára geta raftað hálfa ána á hálfvirði ferðarinnar.

Þarf ég að kunna að synda til þess að fá að fara í River Fun?
Já, skilyrðislaust, hver ræðari þarf að kunna að synda.

Má ég neyta áfengis áður en ég fer í flúðasiglingu?
Nei, alls ekki.  Neysla áfengis gerir þig líklegri til þess að verða fyrir ofkælingu og gerir þig líklegri til þess að gera ófyrirsjáanleg mistök (eins og þú líklega veist :).  Það er þess vegna sem það er algjörlega bannað að neyta áfengis í flúðasiglingum okkar.  Ef grunur er um að þátttakandi sé undir áhrifum þá neitum við honum um þátttöku í siglingunni.

Hvað þarf ég að taka með mér fyrir flúðasiglingu á Hvítá?

Þú þarft að hafa með þér:  Sundföt (eða nærföt til skiptana) sem þú klæðist innan undir blautbúningnum, hlýja flís eða ullarpeysu sem þú klæðist undir raft jakkanum (þú kemur til með að blotna) og handklæði.  Allt annað útvegum við.

Mælið þið með River Fun (flúðasigling á Hvítá) ef ég hef enga reynslu af flúðasiglingum?
Já, ferðin er fullkomin fyrir byrjendur.  Ef þú hefur farið í flúðasiglingu áður og ert að leita þér að meiri hasar og adrenalíni getur þú farið í River Ride sem er kanóferð niður Hvítá, eða jafnvel flúðasiglingu niður Jökulsá Austari (sem er gerð út fyrir norðan í Skagafirði).

Geta bátarnir sokkið?

Bátarnir sem við notum eru gerðir úr mjög sterku, sérgerðu gúmmíi og hverjum báti er skipt uppí nokkur hólf.  Sem þýðir að í þau einstöku skipti sem það kemur gat á bátinn eru allar líkur á að aðeins eitt hólf leki, þannig að bátarnir sökkva alla jafna ekki.

Er leiðsögumaður á hverjum bát?
Já það eru sérþjálfaðir og útskrifaðir leiðsögumenn á hverjum bát fyrir sig.

Hvernig komumst að ánní frá Drumbó?
Við ökum öll saman frá Drumbó á reffilegu rútunum okkar :)

Get ég tekið myndavélina mína með í bátinn?

Þú getur tekið hana með þér ef þú vilt, en ef myndavélin er ekki vatnsheld þá eru 100% líkur á að hún skemmist.  Hægt er að kaupa einnota vatnsheldar myndavélar á Drumbó.  Stundum erum við með atvinnuljósmyndara með í ferð og þú gætir keypt af honum myndir, en það er alls ekki alltaf.

Fæ ég flotvesti (personal floating device)?

Já við sjáum öllum fyrir flotvesti (PFD).